Atburðarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Dadara!

14. júní 2007 klukkan 19:57


Okay okay ég var búnað segja að síðasta færsla yrði sú síðasta héðan frá the big E! En langaði bara að segja nokkur orð í viðbót...þar sem ég hef ekkert betra við tíma minn að gera! J 

Í dag fór ég semsagt í restina af CPE prófinu mínu og sat næstum stanslaust í 5 klst.! Úff maður var nú komin með auman botninn og var mjög svo gott að standa upp og teygja úr sér. Ég er bara nokkuð sátt með gengi mitt í prófinu og er bjartsýn á þetta J  

Ég er svo á fullu að pakka núna, er einmitt í pásu hehe og ég er svooooo að fara að koma heim með 50 kíló eða e-ð... hehehe
J Á morgun ætla ég svo í bæinn að útrétta smá áður en ég fer heim og annað kvöld ætlar Ben að fara með mig ásamt familyunni og hinum nemendunum út að borða. Svo sætt af honum og hann sagði við mig um daginn að hann ætti eftir að sakna mín svo mikið því ég væri orðin eins og ein af dætrum hans! Ohhh hann er nottla krúttlegastur J
 

Annars held ég að ég eigi eftir að sakan Englands soldið þegar ég kem heim og tala nú ekki um fólkið hérna. Var einmitt að kveðja Stefanie í dag, sem hefur verið mín nánasta vinkona hérna úti og það var svo sorglegt...vá ég hélt ég myndi fella tár. En víkingurinn harkar ávalt af sér haha
J En hún er víst búnað plana að ég komi í heimsókn til hennar og Sofie til Swiss í ágúst! Heheh en Eva mín sæta verður á landinu svo mig langar að sjálfsögðu að nýta tíman með henni JJ
 

Ég segði þá bara adios og sjáumst ekki á morgun heldur hinn! Allavega suma en hina sé ég þá bara á næstu dögum
J 
 

Ykkar verðandi UDDA J  
Urður G. Norðdahl
4 athugasemdir

Ísland farsældar frón...eftir viku!

09. júní 2007 klukkan 15:36




Jæja ég ákvað að blogga...svona til tilbreytingar
J 

Ég er semsagt búin núna í 2 hlutum prófsins af 5! Munnlega var í gær og gekk það alveg líka glimrandi vel
J Í dag var svo hlustun sem gekk líka mjög vel J þannig að eins og maður segir á úglenskunni...so far so good! 

Annars er skólinn búinn núna og ég fékk þetta flotta Certificate frá skólanum sem staðfestir að ég hafi verið í námi þar og að ég sé búin að ná vissu leveli eða High-Advanced sem víst besta sko hehehe smá mont í gangi
J 

Á fimmtudaginn er svo restin af prófinu eða reading, writing and use of english og samanlagt er það 5 og hálfur tími, takk fyrir! Maður verður að reyna að halda einmbeitingunni út úffff...
 Veðrið hérna er svo búið að vera hálf pirrandi rigning, sól, rigning, sól, rigning, sól....ég er búin að vera voða dugleg að reyna að nota sólina þegar hún birtist en mér tókst nottla að brenna svona svakalega á öxlunum um daginn þegar ég skellti mér í sólbað að ég varð alveg ELDrauð og er búið að taka viku að jafna sig. Í dag byrjaði ég svo að flagna svo mér líður eins og snákur...ekki smart hahaha 

Annars er allt að gerast þessa daganna....Ólöf afmæli á miðvikudag, prófið nottla og svo er ég að KOMA HEIM!! Júhú. Í vikunni stefni ég því á mikin lærdóm og að byrja bara að pakka
J vá ég er samt ekki að trúa að ég sé búin að vera hérna í meira en 5 mánuði...hvert hefur tíminn flogið?? Og já það eru allar líkur á því að þetta verði síðasta bloggið mitt í Englandi því eins og ég er nú duglega að blogga þá gerist það ekki oft í sömu vikunni hehe og einnig miklar annir framundan svo ef þið hafið einhver loka comment endilega látið vaða!! 

Við sjáumst þá bara eftir VIKU!! 

Udda í útlandinu....but not for long
J
Urður G. Norðdahl
6 athugasemdir

babara

01. júní 2007 klukkan 09:51



Vá það er ekkert annað, það er bara komin JÚNÍ!! Geðilegan júní allir saman J Nú er sko aldeilis farið að styttast í mig get ég sagt ykkur og ég er komin með fiðring í magan af spenningi yfir að vera að koma heim...tíminn er svo sannarlega búin að fljúga áfram og eins og þetta virtist nú langt í byrjun janúar, 5 og hálfur mánuður og núna bara 2 vikur eftir!!

Datt í hug að punkta niður fyrir ykkur það helsta sem er framundan hjá mér:

* 6 dagar í sólalok

* 7 dagar í munnlega lokaprófið

* 8 dagar í hlustunar lokaprófið

* 12 dagar í afmælið hennar Ólafar sætu

* 13 dagar í loka prófið (lestur, skrift og málfræði)

* 15 dagar þangað til ég kem heim!!

* Bara 2 helgar eftir í Cambridge 

Segiði svo ekki að þetta sé að fara að styttast allt saman! Ég er samt komin með smá áhyggjur af yfirvigtinni hehe er búin að kaupa allt allta allt of mikið af dóti hérna
J 

Ekki meira í bili ætla að hlaupa út í sólina, já mikið rétt það er loksins komin sól og 20° C hiti!
 

Udda í sumarskapi
J
Urður G. Norðdahl
5 athugasemdir

Clear light of day

13. maí 2007 klukkan 21:24



Kosningar, Eurovision, Spider-man, International day, strætóferðir, rigning!

 
Síðustu dagar eru búin að vera skrautleg flétta ýmissa ólíkra atburða sem voru oft á tíðum mjög spaugilegir.

 
Fimmtudagur: Biðin eftir Eurovision  tók loks enda og undirbjó mig undir öðruvísi Eurovision stemmingu en vant er. Það er nottla ekki alvöru Eurovision nema að kíkja í heimsókn til hennar Heiðu minnar með osta og vínber og annað góðgæti og fylgjast með keppninni. En þarna sat ég umkringd bresku familyunni og hvatti Íslandið góða og Ben var meira að segja svo vænn að ljá okkur atkvæðið sitt J Það kom okkur nú ekki áfram eins og búast mátti við og þessi “Austanblokks Mafía” hrifsaði nottla öll sætin...það er komin tími til að fara að skipta þessari keppni í tvennt!

 
Föstudagur: International day var í skólanum og engin kennsla þann daginn. Nemendur áttu að para sig saman frá sínum löndum og koma með e-ð þjóðlegt t.d. mat, tónlist eða dansa. Þar sem ég er látum okkur sjá...EINI nemandinn frá Íslandi var hópurinn minn ekki stór þannig ég slóst í hóp með Svissnesku vinkonum mínum úr bekknum og fékk að vera svissnesk í einn dag haha. Dagurinn var mjög vel heppnaður og maður gekk um og smakkaði mat frá hinum ýmsu löndum m.a. frá Kína, Japan, Kóreu og Víetnam. Jú og ég smakkaði Sushi í fyrsta sinn! Ótrúlega gott bara og ég borðaði það með prjónum lalala ekki dugleg?
Um kvöldið hélt ég ásamt stelpunum (Stefanie, Sophie, Iris og Julia) á The Anchor sem er einn elsti pöbbinn hér í Cambridge. Þar var mikið spjallað, hlegið og bjór drukkinn. Einnig ákváðum við að fara í bíó kvöldið eftir á Spider man 3 en þar sem engin okkar hafði séð 2 þá þurftum við einnig að plana áhorf á hana áður en við sáum þá þriðju.

 
Laugardagur: Hrökk upp af værum blundi við sms frá Stefanie hvort ég gæti verið komin heim til hennar eftir klukkutíma. Ég stökk í fötin og beint í strætó og þar sem við búum í sitthvorum hluta bæjarins tók strætóferðin yfir klukkutíma! Jæja ég komst á leiðarenda og Iris kom einnig og við horfðum á Spidey 2. Um kvöldið fórum við svo í bíóið (ákvað að gefa skít í AusturEurovision) sem gekk nú ekki hrakfallalaust fyrir sig. Það byrjaði nottla á því að það var uppselt á myndina þannig við biðum í klukkutíma eftir næstu sýningu. Eftir að hafa byrgt okkur upp af popp og kók (allt svo ódýrt hérna maður) héldum við inní sal og stelpurnar völdu sæti fyrir miðju beint fyrir aftan einhverjar turtildúfur. Þegar við vorum að fá okkur sæti vildi svo ekki betur til en að Iris missir popp pokann sinn beint yfir fólkið fyrir framan! Þau sitja þarna öll út í poppi og við alveg að kafna úr hlátri og Iris nær að biðjast afsökunar milli hláturkviðanna. Stendur þá gellan ekki upp alveg: We are moving! Gaurinn er ekki alveg á því að nenna að hreyfa sig og reynir e-ð að róa gelluna niður en hún er avleg: If we are not moving they are moving! Og gefur okkur alveg “þiðeruðekkivelkomnarhér” look og við nottla enn að springa úr hlátri. Hún labbar svo e-ð fram og til baka en gefst svo upp á endanum og sest hjá gaurnum sínum og horfir á myndina.  

Eftir myndina reyndi ég svo e-ð að ná leigubíl heim en það fór ekki betur en svo að leigubílstjórinn (sem var einhver indverjatittur) fór að elta mig og flauta eftir að ég vildi ekki koma uppí bílinn. Ég var nú orðin hálf smeik þannig ég brunaði beint inní næsta strætóskýli þar sem ég þurfti svo að bíða eftir strætó í 50 mín
L Og með minni heppni þá festist strætóinn svo niðrí bæ og löggan þurfti að koma og draga hann burt og læti! Ég komst þó heim á endanum kl. 3 og fór beint á netið til að fylgjast með kosningavökunni og var svo spennt að ég steinsofnaði yfir henni.  

Í morgun
flýtti ég mér nottla að kíkja á netið að tjekka á úrslitum kosninganna og var nú ekki alveg sátt við að ríkistjórninn haldi velli! Þetta leit svo vel út í nótt þegar hún var á niðurleið...en jæja svona er þetta víst...
Annars er dagurinn að mestu búin að fara í lærdóm og inniveru. Því eins og Íslendingar ættu að hafa tekið eftir er sólin búin að vera hjá ykkur og hvað fáum við? Rigningu! Og ekki lítið af henni, heldur hellidembu. Það er semsagt búið að rigna núna í næstum viku og einna mest í dag. Eða eins og við segjum hérna þegar er svona hellidemba: It´s raining cats and dogs! Já þessi ensku máltæki eru oft spaugileg...

Seeya!
Urður G. Norðdahl
5 athugasemdir

Queuing!

08. maí 2007 klukkan 21:26


:: Vonum að ástandið verði ekki svona slæmt... ::

Hvað er málið með þessa blessaða Breta og biðraðir? Ég og Stephanie vorum að ræða þetta um daginn, það er eins og þetta sé þeirra helsta ástríða (kannski fyrir utan að drekka te) að standa í biðröð! Þegar maður fer að spá í þetta og  fylgjast aðeins með þessu sér maður biðraðir allstaðar: í búðum, á börum já og jafnvel á strætóstöðum. Eins og það myndi gerast heima að maður færi á bar og styllti sér pent upp í biðröð og biði eftir að fá afgreiðslu! Nei ég held nú ekki, maður þarf svoleiðis að brjótast í gegnum þvöguna (já stundum kemur sér vel að vera lítill og geta smeygt sér undir hehe) veltast svo um reynandi að hrópa til barþjónsins hvað maður vill panta. Hér fer maður bara í röð, pantar sinn bjór og fer í burt með bros á vör
J
Einnig hugsa ég til strætó stoppistöðvanna á Íslandi þar sem allir hanga í hrúgu og þegar strætó birtist gusast allir út og inn á mis. Hér bíður maður eftir að farþegarnir komist fyrst út og svo heldur maður inn í sinni röð.

Þar sem þessi biðraða stemming virðist ríkjandi hérna og fólk noti hvert tækifæri til að standa í biðröð vorum við farnar að gera grín að þessu öllu saman og segja að maður verði að fara að passa sig þegar maður stoppar út á götu t.d. til að reima skóna sína því þegar maður stendur upp gæti verið búin að myndast biðröð fyrir aftan mann. Það er eins og fólk hugsi: hey stopp manneskja, best að standa í röð! Jeij.Stephanie lenti samt í því um daginn að stoppa út af einhverju svo þegar hún leit aftur stóðu 3 manns fyrir aftan hana í biðröð og hún alveg uh og læddi sér í burtu. Hún hefur þá sennilega staðið á einhverjum stað sem gaf tilefni fyrir biðröð J

 

Vildi bara deila þessu með ykkur J 

Annars bara Eurovision og kosningar framundan...eru ekki allir spenntir??
 


Ég

Urður G. Norðdahl
6 athugasemdir

Sjúbb sjúbb sjallei!

05. maí 2007 klukkan 14:57






Já lömbin mín það er orðið frekar langt síðan ég bloggaði síðast og margt og mikið sem hefur gengið á hér síðan þá. Ég  nenni nú ekki að fara að skrifa niður allt þannig ég ætla að nefna það helsta.

 
Það er nú þess virði að nefna það að nú er komin maí! Það finnst nú kannski ekki öllum merkilegt en það finnst mér einmitt vegna þess að það þýðir að ég kem heim í næsta mánuði! Júhú. 

Í síðustu viku var svo progress test sem er einskonar æfingarpróf fyrir lokaprófið í júní og er bara svona til að kanna persónulegan árangur. Það gekk bara rosalega vel og ég hækkaði mig meira að segja síðan í síðasta progress testi :D Þannig núna er bara að nota tímann sem er eftir til að soga í sig alla þá ensku sem maður hugsanlega getur!
Svo fer nú að styttast í að skólinn klárist en síðasti kennsludagurinn er 24. maí sem þýðir að það eru bara rúmar 2 vikur eftir af kennslu. 

Allavega skellti ég mér til London í gær í leit íslenska sendiráðinu til að fara að kjósa. Þar sem þetta eru fyrstu alþingiskosningarnar mínar vildi ég auðvitað alls ekki sleppa því að kjósa og eini möguleikinn sem ég hafði í stöðunni var að halda til London.  Það var nú frekar skrítið að tala við íslendinga svona face to face eftir að hafa einungis talað við ensku mælandi fólk í yfir 4 mánuði. Það var voða gaman að komast og kjósa og ég fékk meira að segja að fara í svona klefa og alles, meget sjovt! Fannst ég alveg einstaklega fullorðin allt í einu því ég á margar minningar síðan ég fór með mömmu og pabba að kjósa þegar ég var yngri og þá þurfti ég alltaf að bíða fyrir utan, ekkert smá fúl því mig langaði að vera eins og fá að fara inn í klefann. Svo var ég líka alltaf svo fúl þegar þau vildu ekki segja mér hvað þau kusu og ég hugsaði með mér að ég ætlaði aldrei að gera svoleiðis. Hehe síðan er maður í sömu sporum núna. En ég get allavega fullvissað ykkur um að ég kaus rétt :D
Eftir kosninguna tók ég svo nett túrista tripp um London því ég áttaði mig á því að þetta er í fimmta sinn sem ég fer til London núna en ég hef aldrei farið á þessa helstu túrista staði eins og Big Ben, Westminister Abbey, Buckingham Palace og fl. Eftir þessar túrista heimsóknir fór ég í Covent Garden þar sem er einstaklega gaman að spóka sig inn um á milli markaðarsins, búðanna, kaffihúsanna svo ekki sé minnst á alla þá götulistamenn sem sýna þar listir sínar. Það var svo fyndin náungi þarna sem byrjaði showið sitt fullklæddur en endaði einhvernveginn á rauðum leður g-string á svona uni-cycle, veit ekki íslenska orðið...svona hjól á einu dekki, ef það meikar sens! En þetta var svoooo fyndið ég var farin að tárast undir lokin.
Þetta var alveg frábær dagur í alla staði. 

Dagurinn í dag er svo búin að fara í leti að mestu leiti en þarf svo að læra e-ð líka. Annars var ég svo dösuð eftir London í gær því undergroundið var bilað og ég þurfti því að labba út um allt svo ég svaf í 13 tíma í nótt og langar bara að sofa meira...hehe. Jæja maður verður að fara að hrista af sér slenið.
 

Urður
J
Urður G. Norðdahl
3 athugasemdir

London, París, Róm...

25. apríl 2007 klukkan 20:47
 


 




Vildi bara láta vita að það er komið inn FULLT af nýjum myndum á myndasíðuna!!! loksin :D (linkur til hliðar)

Búið að bæta myndum í:
* Ýmisleg
* London 2nd trip
* Dublin trip

Einnig fullt af nýjum albúmum:
* Brighton trip
* Oxford trip
* Eva og ég í London
* Familyan í Cambridge
* York trip
* Stúdentapartýið

Njótið vel og verið endilega dugleg að kíkja :D

Udda - stuð að eilífu!
Urður G. Norðdahl
2 athugasemdir

York!

23. apríl 2007 klukkan 21:43


:: Stefanie og ég...yfirlýstar í York ::

Þar sem það er nú ekki algengt að það hellist yfir mig þessi mikla bloggþörf ákvað ég að nota tækifærið og skella niður nokkrum orðum.

Ég var að hugsa með sjálfri mér að mér finnst ég ekkert finna fyrir að ég sé orðin mjög bresk en samt þegar ég hugsa betur um það þá er ég bara ekki frá því. Í fyrsta lagi tók ég eftir að ég er farin að hugsa og dreyma á ensku, svo er ég farin að enska íslenskuna sem ég tala eins og t.d. “Ég hef tíma eftir hádegi” ( I have class in the afternoon) og “Ég ætla að kaupa rútu miða eina leið” ( I´m going to buy a coach ticket one way) en það er víst rétt að segja aðra leið í íslensku eins og móðir mín benti mér á!

Svo þegar ég var að skrifa innkaupalista um daginn og skrifaði: Inncaupalisti!!  fattaði ekki strax hvað ég hafði skrifað en tók svo eftir því og skellti uppúr.

Ætli þetta séu einhver merki um að ég sé orðin ensku-vædd?? Jah maður spyr sig...

Annars er gaman að segja frá því að síðasta laugardag hélt ég í skólaferð til York sem var æðisleg í alla staði! Fór með nokkrum vinkonum úr bekknum: Stefanie frá sviss og svíunum Ingrid og Pernilla.Á miðöldum þegar víkingarnir réðust inní England var York (eða Jórvík á íslenskan máta J) höfuðborginn þeirra. Umhverfis borgina eru svo partar af virkisvegg sem víkingarnir reistu, sumir partar hafa þó verið rifnir og aðrir endurbyggðir. Á þessum vegg er svo hægt að labba, sem við gerðum einmitt og fíla sig eins og víkingur (ekki spillir fyrir að hafa víkingablóð í æðum) og kíkja í gegnum götin á veggnum sem voru notuð til að skjóta örvum á óvinina sem nálguðust.



:: Virkisveggurinn góði ::



:: Stefanie og "the tall Dutch guy" eins og við kölluðum hann ::

Við spókuðum okkur svo í bænum sem er mjög gamall og með fullt af gömlum þröngum götum. Gaman að segja frá því líka að þar sem þetta var eitt sinn víkingabær þá eru nokkur orð sem eru líkari skandinavískum tungumálum heldur en ensku s.s. þeir segja ekki street fyrir götu heldur Gate = gata. Ekki kúl huh?

Fyrir mig einkenndist þessi ferð annars “næstum slysum” fyrir mig þar sem ég átti það til að stoppa á miðri götu til að líta á kortið (maður er sko sannur túristi) bauð því uppá að rúllað væri yfir mig af ýmsum toga. M.a. varð ég næstum undir nokkrum bílum og ein kona gekk á mig í orðsins fyllstu merkingu (reynar held ég að hún hafi verið full, það tísti svo einkennilega í henni
J) og hún kramdi tánna mína. Þegar við svo héldum til baka að rútunni, ég haltrandi, stoppaði ég í síðasta sinn til að líta á kortið. Ég var þarna í makindum mínum að finna leiðina þegar stefanie stekkur allt í einu til hliðar og hrópar upp yfir sig “ úhh Udda” og ég alveg ha og lít upp. Stend ég þá ekki augliti til auglitis við hest sem hnussar á mig!! Ég veit ekki hvert hjartað mitt ætlaði og gaf frá mér eitthvað óskilgreint gól um leið og ég tók svaka listrænt stökk til hliðar sem vakti kátínu hjá viðstöddum og fólkið í kring hló að mér.... Eitthvað sem ég bjóst ekki við að mæta, hesti með hestvagna á miðri götu. Good times.



:: Gömul og þröng gata í York ::

Í dag fékk ég samt allt í einu tilfinningu að mig langar ekki að fara heim og það sé of stutt eftir! Bara rúmir 50 dagar eftir á enskri grundu og svo á ég aldrei eftir að koma hingað aftur. Eða notta sennilega í heimsókn í framtíðinni en ég meina ég á aldrei eftir að upplifa sömu aðstæður né að búa hjá Ben og co.

Ég held það verði bara pínu sorglegt að koma heim og ég eigi eftir að sakna þeirra L En engar áhyggjur ég hlakka líka til að koma heim og hitta alla J Svo auðvitað allir hlutirnir sem ég þarf að venjast aftur heima eins og hægri umferð, tala íslensku alla daga, stóra rúmið mitt, íslenskur matur jah og nottla veðurfarið...bbbrrrrr...

 

Jæja börnin mín góð ætli þetta sé ekki orðið gott í bili, ég er með málæði núna hehe.
 
Seeya mates! U-dog
Urður G. Norðdahl
4 athugasemdir

Summertime...

20. apríl 2007 klukkan 09:46


:: Oooh c´est la vie ::

57 dagar! Já mikið rétt, eftir hvorki meira né minna en 57 daga kem ég heim!! J Þetta þýðir einnig að ég er búin að vera hérna í 108 daga, thank you very nice. Ég var að átta mig á því nýlega hversu óhugnalega stutt það er eftir! Og nú eru bara 5 vikur eftir af skólanum og svo er 3 vikna upplestrarfrí og svo er stefnan tekinn á klakann þann 16. júní, já mikið rétt ég næ 17anum J

Annars er nú margt búið að drífa á daga mína að unanförnu skal ég segja ykkur. Hér er alltaf sama blíðan að vanda, sólin leikur við hvurn sinn fingur og ekki sést ský á himni. Það má sko með sanni segja að lífið sé draumur í dós, miklu betra en allur kuldinn heima á Íslandi hjá ykkur...hehe. Ég er að sjálfsögðu búin að njóta lífsins til hins ýtrasta og síðustu vikuna eru ég og nokkrar vinkonur mínar úr bekknum búnar að hanga í almenningsgörðum á lautarteppinu okkar góða með osta, hvítvín og annað góðgæti. Mmmm svona á lífið að vera í  lok apríl!

Í gær fór ég svo í bíó með fjölskyldunni og við stelpurnar á heimilinu (dóttirinn og nemendurnir) gerðum veðmál um hve lagt yrði liðið á myndina þangað til pabbinn, hann Ben myndi sofna. Hann á sér history að sofna í bíó sko...haha. En að þessu sinni ákvað hann að sofna ekki...okkur hinum til nokkurar mæðu. Held samt hann hafi gert það viljandi til að við myndum ekki hagnast á þessu...hehe. Good times. Við fórum að sjá “The curse of the golden flower” sem var mjög góð en samt einstaklega blóðug mynd og soldið spes þar sem allir fjölskyldumeðlimir voru búnir að slátra hvor öðrum undir lok myndarinnar....

Annars gengur lífið hér bara sinn vana gang eins og ég sagði áður og NÓG að gera í skólanum!! Stundum of mikið að mínu mati...en hvað um það þetta verður búið eftir innan við 2 mánuði! Júhú J

Udda – kveður að sinni...
Urður G. Norðdahl
7 athugasemdir

Fjölskyldu koman til Cambridge!!

12. apríl 2007 klukkan 20:27

Nú eru liðnir 2 dagar frá því að familyan hélt aftur í kuldan á klakanum eftir vikudvöl hér í hitanum í Cambridge! Þetta er búið að vera alveg yndislegur tími og svolítið tómlegt hér núna þegar ég er ein eftir...En við brölluðum ýmislegt saman og ég setti hér inn nokkrar myndir af hápunktum ferðarinnar. Njótið vel!




* Tilraunir til fjölskyldumyndatöku voru gerðar *



* Breskir barir voru stundaðir af kappi *



* Siglt var á ánni Cam með sææætum leiðsögu gaur *



* Haldið var í "grillveislu" í gariðinum hjá Ben og co. *



* Farið var til London og skrautlega fólkið á Camden Town market var tjekkað út *



* Borðað var með prjónum í fyrsta skipti!! *



* Haldið var í rómantíska lautarferð í fallega almennings garðinum í Cambridge *

Svona í lokin þá er hér skondin saga af atviki sem kom fyrir pabba "gamla":

* Guest housið sem við vorum á var voða krúttlegt og allt í antík stíl þ.á.m. húsgögnin. Fyrsta morguninn í morgunmatnum þegar við vorum nýlokin við morgunmatinn og pabbi var að ýta sér frá borðum, vildi ekki betur til en stóllinn sem hann sat á brotnaði! Þegar George (eigand guest housins) kom hlaupandi lá greyið pabbi í spítnabraki á miðju gólfi. Jæja pabbi komst nú á lappir og segir við George: Very Old! (og átti að sjálfsögðu við sjálfan sig) En George kallinn misskildi víst aðeins og svarar: Yes it´s Antík! (og meinti nottla stólinn)*

Vá ég hélt ég myndi springa úr hlátri! já góð saga.

Takk aftur fjölskylda fyrir æðislegar stundir!! JJ
Urður G. Norðdahl
5 athugasemdir